Gagnasöfn fyrirtækja fara sífellt stækkandi og gegna veigameira hlutverki en áður. Afritun og endurheimting gagna er því einn mikilvægasti þátturinn í öryggi tölvukerfis. Mikilvægt er að gögn séu afrituð reglulega, tryggt að afritun takist í hvert skipti og að endurheimting gagna sé einföld.
Við bjóðum tvær leiðir við afritun en munurinn á þeim sá að annars vegar sjá tæknimenn okkar um allt sem við kemur afritunum en hins vegar sér viðskiptavinurinn um afritunina með aðstoð búnaðar frá okkur. Öll afrit eru send dulkóðuð yfir netið og vistuð á öruggum stað í hýsingarsal okkar.
Afritun með þjónustu
Starfsmenn okkar setja upp afritunarþjónustu og sjá til þess að afritun gangi eðlilega fyrir sig, fylgjast með skilaboðum frá afritunarkerfi og bregðast við sé þess þörf. Viðskiptavinur er laus við spóluskipti, prófanir og aðrar áhyggjur við afritunartöku. Þurfi viðskiptavinur að fá gögn sótt í afrit hefur hann samband við starfsmenn okkar sem sjá alfarið um endurheimtingu gagnanna.
Afritun í sjálfsafgreiðslu
Viðskiptavinur sækir um afritunarþjónustu hjá okkur og fær öll þau tól og leiðbeiningar sem hann þarf til að setja upp örugga afritun. Viðskiptavinur ákveður hvaða gögn á að afrita og hvenær. Þurfi að sækja gögn í afrit hefur viðskiptavinur fullan aðgang í að sækja þau sjálfur.
Eftirlit
Mjög öflugt sjálfvirkt vaktkerfi vaktar allar helstu þjónustur á búnaði okkar og viðskiptavina okkar. Mikilvægt er að vakta álag, gæði og uppitíma netsambanda ásamt stöðu helstu eiginleika netþjóna og annarra kerfa. Tæknimenn okkar fylgjast með öllum kerfum allan sólarhringinn.


