Allur okkar búnaður er hýstur í fullkomnum vélarsölum sem uppfylla allar helstu kröfur sem gerðar eru um öryggi og uppitíma. Við notum eingöngu fyrsta flokks vél- og netbúnað frá aðilum eins og IBM, HP, DELL og Cisco. Til að tryggja fyrsta flokks öryggi er aðgengi að búnaði takmarkað.
Allur búnaður er tvítengdur með ljósleiðarasamböndum og tengdur við varaaflgjafa til að tryggja hámarks þjónustu.
Við höfum mjög öflugt sjálfvirkt vaktkerfi sem vaktar allar helstu þjónustur á hýsingarbúnaði okkar og netþjónum. Verði vaktkerfið vart við eitthvað óeðlilegt sendir það tilkynningar sjálfvirkt á tæknimenn okkar. Tæknimenn okkar eru á bakvakt utan hefðbundins dagvinnutíma.
Hýsingarþjónusta okkar nær yfir öll helstu svið tölvukerfa og þar má t.d. nefna;
- Netþjónar
- Vefsíður
- Tölvupóst POP3/IMAP4
- Exchange pósthólf
- Open Source kerfi
Hafðu samband fyrir frekari upplýsingar í síma 517 3400 eða á nhnet@nhnet.is.


