Ísafjörður við Skutulsfjörð
Þjónusta

Þjónusta við tölvukerfi er mjög margþætt og fer eftir umfangi og tegund starfsemi viðskiptavinarins. Við sjáum um rekstur, að hluta eða heild, meðal stórra og mjög stórra tölvukerfa fyrir viðskiptavini okkar.

Með góðri þjónustu viljum við finna lausn fyrir viðskiptavininn sem er bæði hentugust og hagkvæmust. með möguleika á þjónustusamningi

Við vinnum með viðskiptavininum við val á hentugum lausnum hverju sinni og setjum saman þjónustusamning óski hann þess. Þjónustusamningar eru góð leið til þess að hafa yfirsýn yfir fastan kostnað við tölvukerfi. Bakvaktarþjónusta utan hefðbundins dagvinnutíma er ávallt innifalin í þjónustusamningum.

Viðskiptavinir okkar geta óskað eftir aðgangi að verkbókhaldi okkar, Esju, þar sem þeir hafa yfirlit yfir þau verk sem unnin eru fyrir þá ásamt því að geta sent inn nýjar verkbeiðnir.

Helstu atriði sem fallið gætu undir þjónustusamninga eru

  • Rekstur netkerfa
  • Rekstur netþjóna
  • Bakvaktarþjónusta utan dagvinnutíma
  • Vefhýsingar
  • Pósthýsingar
  • Lénamál
  • Umsjón með Microsoft leyfum
  • Umsjón með útstöðvum
  • Umsjón með prenturum
  • Umsjón með IP símkerfum
  • Umsjón með flóknari kerfum


Hafðu samband við okkur og kynntu þér kosti þjónustusamninga betur.

Hafðu samband

Björgvin Þorsteinsson
bjorgvin@nethonnun.is

Sími: 517 3414