Dynjandi í Arnarfirði
Um NHnet

Það er mikilvægt að stjórnendur og starfsmenn fyrirtækja geti einbeitt sér að kjarnastarfsemi sinni og þurfi ekki að huga að daglegum rekstri tölvukerfa til að ná markmiðum sínum í öflugu samkeppnisumhverfi.

Þjónusta okkar nær frá heildar umsjón tölvukerfa, aðstoð við tölvudeildir, afleysingu starfsmanna eða ráðgjöf.

Við lítum á það sem áskorun að hjálpa viðskiptavinum okkar að ná markmiðum sínum. Við leitum lausna út fyrir kassann og finnum þær sem henta þeim í hvert skipti.

Við erum lítil rekstrareining með stórt hjarta og mikinn metnað fyrir persónulegri þjónustu. Hjá okkur eru stuttar boðleiðir milli starfsmanna og viðskiptavina og við bregðumst fljótt við þeim óskum sem okkur berast. Við elskum vinnuna okkar og erum hér til að þjónusta þig.

Hafðu samband við okkur og slástu í hóp ánægðra viðskiptavina.

Sagan

Nethönnun ehf hefur frá árinu 1999 veitt fyrirtækjum og stofnunum ráðgjöf, þjónustu og umsjón með rekstri tölvu- og upplýsingatæknikerfa. Í kjölfar endurskipulagningar 2011 fékk hver deild sitt eigið heiti til að skýra áherslur og einfalda val fyrir viðskiptavini. Kerfisrekstrardeild Nethönnunar fékk þá nafnið NHnet.